Á alþjóðlegum degi sjaldgæfra sjúkdóma þann 28. febrúar sl., afhenti RSRG styrk til rannsókna á Rett Syndrome, alls 307.360 kr. eða 1.600 pund til Rett Syndrome Research Trust UK.

Peningunum var safnað með áheitum í Reykjavíkurmaraþoni síðastliðið sumar og frá fólki sem að styrkti sjóðinn á aðventunni í stað þess að senda jólakort. Það voru þeir Jóhann Torfi frændi Guðrúnar og Geir Arnar vinur okkar sem hlupu fyrir Guðrúnu sl. sumar.

Við viljum koma innilegu þakklæti til allra sem hafa styrkt sjóðinn.