Rett Syndrome Rannsóknarsjóður Guðrúnar veitti 1.400 punda styrk til rannsóknar á beinmergsskiptum til að þróa mögulega lækningu við Rett Syndrome, en engin lækning er til við sjúkdómnum í dag. Beinmergsrannsóknin er unnin á vegum Jonathan Kipnis en hann hefur sýnt fram á með rannsóknum á sýktum músum að með beinmergsskiptum hefur tekist að snúa við næstum öllum sjúkdómseinkennum Rett Syndrome. Móðir Guðrúnar, Bryndís María afhenti styrkinn til Rett Syndrome Research Trust UK í London 5. október 2012, sem er aðalstyrktaraðili rannsóknarinnar.
Sjá frétt á heimasíðu Rett Syndrome Research Trust UK
Yngri systir Guðrúnar, Elísa Sædal, var skírð 16. júní 2012. Foreldrar Elísu sögðu að besta gjöfin sem Elísa gæti mögulega fengið væri lækning fyrir Guðrúnu. Þau ákváðu því að benda fjölskyldu og vinum á að í stað skírnargjafa, þá væru þau þakklát fyrir að safna áheitum í Rett Syndrome Rannsóknarsjóð Guðrúnar. Frændi Guðrúnar, Björn Ísberg Björnsson, átti þrítugsafmæli 26. júlí 2012, en hann afþakkaði gjafir til sín og bað vini sína um að heita á rannsóknarsjóð Guðrúnar í staðinn.
Með þessum framlögum frá fjölskyldu og vinum var sjóðnum gert kleift að leggja sitt af mörkum til að styrkja við rannsóknir á Rett Syndrome og stytta leiðina að finna lækningu.